Föstudagur 29. september 2023

Nýtt kvótaár fer vel af stað

Ísfisktogarinn Bergur VE landaði fullfermi í Neskaupstað sl. sunnudag. Aflinn var þorskur og ýsa. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Ragnar Waage Pálmason skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. „Við vorum á Glettinganesflakinu og þar var ágætis kropp. Fiskurinn sem þarna fékkst var líka mjög góður. Í túrnum gerði suðaustanbrælu og þá dró svolítið úr veiðinni. Eftir löndun í Neskaupstað héldum við aftur á svipaðar slóðir, tókum þrjú hol en síðan var haldið suður fyrir land á Ingólfshöfðann. Nú er ekki eitt einasta skip að botnfiskveiðum á austursvæðinu enda bæði Ljósafell og Gullver í slipp en þeir eru þarna venjulega. Togararnir eru mikið í ufsaleit fyrir vestan og það hefur verið ágæt veiði á Halanum. Þetta er allt öðruvísi en í fyrra því þá voru um þetta leyti ársins 20 – 30 togarar fyrir austan í þokkalegri veiði en fiskurinn var auðvitað í síldinni,“ segir Ragnar.

Vestmannaey VE kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun og sló heimasíðan á þráðinn til Egils Guðna Guðnasonar skipstjóra. „Við vorum á Víkinni og á Ingólfshöfðanum og vorum að koma til Eyja með fullfermi. Það var leiðinlegt veður í túrnum, einkum til að byrja með. Þarna voru 7 – 8 metrar en alltaf fiskur. Aflinn er langmest þorskur. Þetta er fyrsti túrinn á nýju kvótaári og það verður ekki annað sagt en að þetta nýja ár fari bara vel af stað. Við reiknum með að halda til veiða á ný strax að löndun lokinni,“ segir Egill Guðni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is