Íslandsbanki í Vestmannaeyjum opnaði í morgun nýtt glæsilegt útibú við Strandveg 26. Þar með er lokið 65 ára starfsemi útibúsins við Kirkjuveg
Tígull kíkt að sjálfsögðu við um hádegið og tók smá spjall við Þórdísi útibústjóra og Birnu Einarsdóttur Bankastjóra. Guðbjörg og Lóa voru að sjálfsögðu mættar til að taka út nýja útibúið og þeim leyst ljómandi vel á þetta allt. Okkur þykir leitt að hljóðið hjá viðmælendum er frekar lágt, við bætum úr því von bráðar með góðri tækni.
Tígull óskar Íslandsbanka innilega til hamingju.

