Þriðjudagur 17. nóvember 2026

Nýr yfirþjálfari yngriflokka í fótbolta

Í tilkynningu frá ÍBV er sagt frá að í byrjun ágústmánaðar hafi ÍBV auglýst eftir nýjum yfirþjálfara yngriflokka í fótbolta og barst mikill fjöldi umsókna í stöðuna.

Ragnar Mar Sigrúnarson hefur verið ráðinn sem nýr yfirþjálfari og hóf hann störf undir lok síðustu viku.

Ragnar hefur verið þjálfari hjá HK undanfarin 12 ár.
Hann er með BS gráðu í íþróttafræðum og meistaragráðu í íþróttavísindum og þjálfun frá Háskólanum í Reykjavík.
Einnig hefur hann verið framhaldsskólakennari í íþróttum við Kvennaskólann í Reykjavík undanfarin ár. Áður hefur Ragnar Mar starfað sem forstöðumaður knattspyrnuskóla í fjölda ára, starfað sem hafnarvörður, í fiskvinnslu og verið sjómaður. En hann er frá Hellissandi á Snæfellsnesi og spilaði með Víking Ólafsvík til fjölda ára.

Við hjá ÍBV erum þakklát fyrir að hafa fengið hann til Vestmannaeyja og bjóðum hann velkominn til starfa.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search