Föstudagur 13. nóvember 2026

Nýr Þór til heimahafnar

Það var hátíðleg stund þegar nýja björgunarskipið Þór kom til Vestmannaeyjahafnar. Skipið er það fyrst af þremur sem Landsbjörg hefur látið smíða, hvert að andvirði 285 milljóna króna. Þá greiðir ríkið helming kaupverðsins. Þetta er stærsta fjárfestingarverkefni slysavarnafélagsins til þessa. Sjóvá hefur styrkt smíðar á skipunum um 142,5 milljónir króna, en í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að skipin muni stytta viðbragðstíma félagsins á sjó um helming í flestum tilfellum. Í tilkynningunni segir ennfremur að skipin skipti miklu máli fyrir öryggi sjófarenda í kringum landið og séu einnig hönnuð með það í huga að geta aðstoðað við björgunarverkefni á landi, til að mynda með því að tryggja fjarskipti á fáförnum stöðum. KewaTec í Finnlandi annast smíðar á nýju björgunarskipunum þremur. Áætluð afhending á öðru skipinu er fyrir árslok 2022 á Siglufirði. Smíði á þriðja skipinu hefst síðan í janúar 2023 og afhending á því verður eftir mitt það ár. Áfram er unnið að fjármögnun 10 björgunarskipa til viðbótar enda er það markmið Landsbjargar að endurnýja öll þrettán björgunarskip sín.

Arnór Arnórsson, formaður BV, sagðist vera mjög þakklátur þeim sem styrkt hafi kaupin til þessa, enn sé þó langt í land. 

Auk styrkjanna sem nefndir eru hér að neðan styrkti Verðandi kaupin um 1,5 milljónir.

Björgunarskipið Þór

 

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, afhenti félaginu blóm og hamingjuóskir f.h. bæjarins.

 

Erlingur Guðbjörnsson færði félaginu styrk uppá 35 milljónir frá hafnarsjóði.

 

Ármann Höskuldsson færði félaginu kíki í nýja skipið frá skátafélaginu Faxa.

 

Elín Ólafsdóttir, fyrir hönd Eykyndils, kom færandi hendi með milljón króna styrk.

 

Tómas Sveinsson færði félaginu eina milljón frá Kiwanisklúbbnum Helgafell.

 

Jón Helgi Sveinsson, fyrir hönd Skeljungs, færði félaginu inneign á 2000 lítra af olíu.

 

Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjármálastjóri Sjóvá sem gefur 142 milljónir í bátana þrjá.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search