Kæru Vestmannaeyingar og gestir!
Nýjasta björgunarskip flotans er væntanlegt til heimahafnar næstkomandi laugardag. Áætlað er að Þór leggist að bryggju í Vestmannaeyjum klukkan 14:10. Í framhaldinu verður stutt athöfn þar sem báturinn fær blessun og honum gefið formlega nafn. Þessi athöfn er fyrir félagsmenn Björgunarfélagsins og boðsgesti.
Almenningi gefst kostur á að skoða hið nýja og glæsilega björgunarskip á sunnudaginn og verður Þór til sýnis milli klukkan 12:00 og 18:00.
Okkur hlakkar mikið til að geta sýnt ykkur skipið og viljum við bjóða ykkur öll hjartanlega velkomin, og hvetja ykkur til að fara varlega á bryggjunni.
Góða helgi og sjáumst á sunnudag!

