Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum hélt nýnemaball fyrir nemendur skólans þann 12. september síðastliðinn. Þetta er fyrsta nýnemaball í nokkur ár og vakti það mikla lukku meðal nemenda skólans. Ballið var haldið í sal skólans og tónlistamaðurinn Ízleifur kom og flutti lögin sín.
Nokkrir nemendur tóku síðan við keflinu, spiluðu og sungu/röppuðu bestu lögin í dag það sem eftir var af kvöldinu.
Að halda viðburði og fá tónlistarmenn til að koma og troða upp getur verið kostnaðarsamt. Svona viðburðir eru mikilvægir til að halda uppi góðu félagslífi i í skólanum og til að fjármagna ballið þurfti nemendafélagið að leita af styrkjum. Ísfélagið, Vinnslustöðin og Laxey ákváðu í sameiningu að styrkja félagsstarfið og með þeirra aðstoð varð ballið að veruleika. Einnig vildu þessi fyrirtæki gefa nemendum bleik ljósahálsmenum sem nemendur báru á sér á ballinu, til að sýna samstöðu og heiðra minningu hennar Bryndísar Klöru sem lést fyrir stuttu eftir hörmulegan atburð.
Ballið gekk vel fyrir sig og allir nemendur skemmtu sér vel og fallega. Nemendafélaginu langar að lokum að þakka fyrirtækjunum sem styrku þau innilega fyrir stuðninginn.















