Tíu manna samkomutakmörkun mun taka gildi innanlands.
Spilasölum og skemmtistöðum verður lokað og fjölmennir viðburðir þar sem neikvæðum hraðprófum er framvísað verða ekki heimilaðir.
Aðgerðirnar taka gildi á miðnætti og gilda til 2. febrúar.
Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða enn opnar og miðast við 50% af leyfilegum hámarksfjölda.
Skólareglugerð frá því í fyrri aðgerðum verður óbreytt. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það sé „prinsippatriði“ að halda skólum opnum.
Aðgerðirnar taka mið af einni tillögu af alls þremur sem sóttvarnalæknir lagði til við heilbrigðisráðherra.
Lokunarstyrkir munu bjóðast þeim fyrirtækjum sem loka þurfa sinni starfsemi.
Þá verður reynt að koma til móts við starfsfólk í heilbrigðiskerfinu til þess að létta þungan róður á því sviði.

