Í ljósi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu verður heimsóknarreglum á HSU breytt frá og með fimmtudeginum, 22. júlí.
Breytingarnar fela í sér takmörkun á komum gesta en sjúklingur má fá einn gest til sín á heimsóknartíma. Jafnframt er mælst til þess að börn undir 12 ára aldri komi ekki í heimsókn.
Fólk sem hefur einhver einkenni smitandi sjúkdóma er beðið að fresta heimsóknum þar til einkennin eru gengin yfir. Grímuskylda er í gildi hjá heimsóknargestum á HSU á meðan heimsókn varir, segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

