Það var hátíðleg athöfn í gær þegar nýja slökkviliðstöðin í Vestmannaeyjum var formlega vígð
Innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson var viðstaddur vígsluna og fjöldi fólks.
,,Slökkvilið Vestmannaeyja var stofnað þann 3.september árið 1913 og þrátt fyrir að hafa verið til húsa á nokkrum stöðum í gegnum tíðina þá, þótt ótrúlegt megi virðast, er þetta glæsilega húsnæði sem við stöndum í hér í dag fyrsta eiginlega slökkvistöðin sem er hönnuð og byggð eingöngu sem slökkvistöð en sem dæmi þá var gamla slökkvistöðin okkar sem við vorum búnir að vera í síðan 1964 upphaflega byggð sem netagerð.“ Svona hófst ræða Friðriks Páls slökkviliðsstjóra sem fór yfir aðdraganda nýju byggingunni og þær gjafir sem stöðin hefur fengið að undanförnu. Hér fyrir neðan undir myndunum má lesa um hvað var gefið.
Nýja slökkvistöðin verður opin gestum og gangandi í dag laugardag og á morgun sunnudaginn milli 13.00-15.00
Oddfellowstúkan Vilborg í Vestmannaeyjum styrktu slökkviliðið til búnaðarkaupa og gáfuæfingadúkku frá Ruth Lee sem líkir eftir meðvitundarlausri manneskju í þyngd og þyngdardreifingu, ásamt hljóðboxi sem inniheldur hin ýmsu hljóð, allt frá snarki í eldi yfir í hróp á hjálp og barnsgrát.
Notkun á þessum búnað saman gerir til dæmis reykköfunaræfingar og björgun mun eðlilegri. Hljóðboxið sem stanslaust er hrópað á hjálp reynir á andlegu hliðina líka.
Hingað til hefur slökkviliðið notast við heimatilbúnar dúkkur sem flestar hafa orðið skrítnar í laginu og endað fljótlega á því að missa útlimi eða rifna í átökunum en allar hafa þær fengið eitthvað nafn og því þótti Friðrik Páli slökkviliðsstjóra tilvalið að þessi nýi og harðgerði æfingafélagi þeirra fengi nafnið Vilborg.
Grímur Guðnason og Eygló Kristinsdóttir eigendur Gúmmíbáta og slökkvitækjaþjónustu Vestmannaeyja færðu slökkviliðinu gjöf í tilefni dagsins. Þau færðu slökkviliðinu Björgvinsbeltið að gjöf og eru þá báðir bílarnir með sama búnað.
Lions í Vestmannaeyjum styrktu stöðina einnig og það ekki í fyrsta sinn. Þeir gáfu slökkviliðinu eiturefnagallar, þetta er dýr, viðkvæmur og gríðarlega mikilvægur búnaður og nauðsynlegur á stað eins og Vestmannaeyjum, og búnaður sem slökkvilið hefur oftar en einu sinni þurft að nota í sínum störfum.
Hörður Þórðarson lét af störfum eftir 32 ár hjá slökkviliðinu. Var honum formlega þakkað fyrir samstarfið undanfarin ár og áratugi. Honum var færður þakklætisvott frá Slökkviliðinu ásamt því að Brunavarðafélag Vestmannaeyja afhenda honum smá pakka.
Sigurður Ing Jóhannsson, Innviðaráðherra, Íris Róbersdóttir bæjarstjóri og Páll Magnússon oddviti H-listans og forseti bæjarstjórnar.






















