Ný stjórn hefur tekið til starfa í Stafkirkjunni á Heimaey, en það eru mennta- og menningarmálaráðherra, Vestmannaeyjabær og Biskup Íslands sem tilnefna í stjórnina til fjögurra ára í senn.
Kári Bjarnason hefur verið tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðherra og tekur við af Hörpu Gísladóttur.
Sólveig Adolfsdóttir hefur verið tilnefnd af Vestmanneyjabæ og tekur við af Guðjóni Hjörleifssyni.
Sr. Guðmundur Örn Jónsson hefur verið tilnefndur af Biskupi Íslands, en hann hefur setið í stjórn Stafkirkjunnar frá 2015.
Varamenn í stjórn eru: Lára Skæringsdóttir fyrir Kára Bjarnason, Ragnar Óskarsson fyrir Sólveigu Adolfsdóttur og sr. Viðar Stefánsson fyrir Guðmund Örn Jónsson.
Stafkirkjan á Heimaey er gjöf norsku Þjóðarinnar til íslendinga í tilefni af 1000 ára afmæli kristni í landinu og hafa Vestmannaeyjabær og Þjóðkirkjan umsjón með henni og umráð.