Mánudagur 25. september 2023

Ný rannsóknartæki á Selfossi og í Vestmanneyjum

Rannsóknastofa HSU á Selfossi hefur í rúm 10 ár verið samtengd rafræna rannsóknakerfinu Flexlab sem LSH heldur utan um og er nú tengd við flestar rannsóknastofur á landinu. Rannsóknarstofan í Vestmannaeyjum hefur ekki búið við þann kost þar sem tækjabúnaðurinn hefur ekki stutt við þessar tengingar.

Bein rafræn tengin við Flexlab eykur öryggi rannsóknarniðurstaðna og tryggir réttar skráningar í kerfunum. Það er því löngu orðið tímabært að endurnýja tækjakostinn á rannsóknarstofunni í Vestmanneyjum svo hægt verði að koma rafrænum tengingum í notkun.

Nýr tækjabúnaðurinn hefur verið settur upp á Selfossi er af gerðinni Cobas 6000 en tækið er mun öflugra en þau tæki sem það leysir af hólmi. Mikil aukning hefur átt sér stað í rannsóknarfjölda á Selfossi og náði eldri tækjabúnaður ekki með góðu móti að anna þeim rannsóknarfjölda sem bárust rannsóknarstofunni.

Tækjabúnaðurinn sem settur verður upp í Vestmannaeyjum er einnig af gerðinni Cobas og styður við rafræna tengingu við Flexlab. Undirbúningur fyrir breytingunum í Vestmannaeyjum er nú í fullum gangi og standa vonir til að rannsóknartækin verði komin í fulla notkun fyrir 20. febrúar n.k. segir Díana Óskarsdóttir, forstjóri HSU

Meðfylgjandi mynd sýnir glæsilegan hóp starfsmanna við nýja rannsóknartækið á Selfossi.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is