Ný mæling loðnustofnsins

Bráðabirgðaniðurstaða loðnumælinga dagana 1.-9. febrúar liggur nú fyrir. Heildarmagn hrygningarloðnu samkvæmt henni er 250 þúsund tonn og hefur þá ekki verið tekið tillit til áætlaðra affalla úr stofninum vegna afráns fram að hrygningu. Þessi mæling byggir á yfirferð sem í þátt tóku RS Árni Friðriksson og uppsjávarveiðiskipin; Aðalsteinn Jónsson SU, Börkur NK, Margrét EA og Polar Amaroq. Mest reyndist vera af loðnu við Kolbeinseyjarhrygginn en einnig fannst loðna við landgrunnskantinn norðaustur og norðvestur af landinu (mynd).

Niðurstaða þessarar mælingu er töluvert undir því marki sem gefur Hafrannsóknastofnun tilefni, samkvæmt aflareglu, til að mæla með veiðikvóta. Svo það gerist má gróflega áætla að það þurfi að minnsta kosti 150 þúsund tonn til viðbótar að mælast.

Þessi mæling á hrygningarstofni loðnu í febrúar er mun hærri en fyrri mælingin í janúar upp á 64 þúsund tonn og því þykir full ástæða til að gera þriðju mælinguna. Árni Friðriksson byrjaði þá mæliyfirferð 11. febrúar og munu veiðskip bætast við í mælinguna um og eftir helgi þegar óveður helgarinnar gengur niður.

Tekið af vefsíðu Hafrannsóknarstofnunar

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is