Miðvikudagur 29. nóvember 2023

Ný heimasíða: Aldur er bara tala

20.11.2020

Í dag föstudaginn 20.nóvember opnar ný vefsíða fyrir eldri aldurshópa sem heitir Aldur er bara  tala www.aldurerbaratala.is (www.aldur.is).

Síðan er einnig á fésbókinni  https://facebook.com/aldurerbaratala 

Markmið síðunnar er að gefa eldri aldurshópum tækifæri til að hafa aðgang að fræðslu og ráðgjöf  um mál er þá varða hvar sem þeir eru búsettir á landinu en mikil fjölgun er í hópi þeirra eldri  borgara sem hafa náð að tileinka sér tölvutæknina. En eins og nafnið gefur til kynna að þá er  Aldur bara tala og markmiðið líka að yngri aldurshópar og starfsfólk í öldrunarþjónustunni hafi  gagn og gaman að því að skoða síðuna.  

Aldur er bara tala er ætlað að veita leiðbeiningar, stutta ráðgjöf og fræðslu til eldri aldurshópa  þar sem hægt er að senda fyrirspurnir í gegnum fyrirspurnarform á forsíðunni. Úrdráttur úr  fyrirspurn og svari er síðan birt á síðunni til að það nýtist öllum og að sjálfsögðu undir nafnleynd.  Að þessari ráðgjöf og fræðandi greinum koma Sólrún Erla Gunnarsdóttir félagsráðgjafi, Soffía  Eiríksdóttir hjúkrunarfræðingur og Guðný Stella Guðnadóttir öldrunarlæknir. Fleira fagfólk mun  bætast í hópinn síðar. 

Aldur er bara tala á einnig að hafa afþreyingargildi og jákvæð áhrif á heilsu og líðan með  uppbyggilegum og skemmtilegum greinum og viðtölum. Við tökum einnig vel á móti innsendum  greinum og vangaveltum er snúa að því göfuga hlutverki að fá að eldast. Aldur er bara tala er  verkefni sem kemur til með að þróast með þeim sem nýta síðuna og eru því allar ábendingar og  efni vel þegið á aldur@aldur.is 

Aldur er bara tala hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands og er í samstarfi við  félagsmálaráðuneytið. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is