Föstudagur 21. ágúst 2026

Ný greiðsluleið fyrir umsóknir á Ísland.is

Nú er hægt að greiða fyrir valdar umsóknir á Ísland.is með kröfu í netbanka. Hingað til hefur einungis verið boðið upp á greiðslu með greiðslukorti, en með þessari viðbót fá notendur aukið val um greiðslumáta.

Nú er hægt að greiða fyrir valdar umsóknir á Ísland.is með kröfu í netbanka. Hingað til hefur einungis verið boðið upp á greiðslu með greiðslukorti, en með þessari viðbót fá notendur aukið val um greiðslumáta.

Lausnin er samþætt greiðslukerfi Ísland.is og geta notendur því valið hvort þeir greiði með greiðslukorti eða með kröfu. Velji notandi að greiða með kröfu er hún stofnuð samstundis og birtist strax í netbanka umsækjanda. Fyrirtæki geta jafnframt móttekið kröfuna í gegnum skeytamiðlun og unnið hana áfram í sínum fjárhagskerfum.

Þegar krafan hefur verið greidd er umsóknin afgreidd án tafar og þjónustan sem sótt er um veitt með sama hætti og þegar greitt er með greiðslukorti.

Þessi greiðslumöguleiki hentar sérstaklega vel fyrirtækjum sem vilja taka við reikningum og greiðslufyrirmælum í gegnum skeytamiðlun, greiða þau þar og bóka greiðslurnar sjálfvirkt í fjárhagskerfum sínum.

Dæmi um þjónustu sem nú er hægt að greiða fyrir með kröfu eru eigendaskipti á tækjum hjá Vinnueftirlitinu, endurmat brunabótamats og skráning nýrra fasteigna hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, auk umsókna um ökuritakort hjá Samgöngustofu.

Á næstunni verður jafnframt bætt við nýjum greiðslumöguleika sem gerir notendum kleift að greiða með millifærslu beint af bankareikningi sínum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search