Mánudagur 25. september 2023

Ný Ferðagjöf stjórnvalda

Fyrirhugað er að gefa út nýja Ferðagjöf stjórnvalda í sumar og verður fjárhæðin sú sama og árið 2020, þ.e. 5.000 kr. fyrir einstaklinga fædda 2003 eða fyrr

Enn verður hægt að nota ónýttar Ferðagjafir, útgefnar árið 2020, til 31. maí 2021, en eftir það falla þær niður við endurnýjun Ferðagjafar 2021.

Ferðagjöfin er hluti af nýjum aðgerðapakka stjórnvalda til að byggja enn frekar undir íslenska ferðaþjónustu, en fyrirtæki í ferðaþjónustu eru meirihluti þeirra sem nýtt hafa efnahagsúrræði stjórnvalda undanfarið ár, enda hefur greinin orðið fyrir búsifjum umfram aðrar greinar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra mun leggja fram frumvarp um endurnýjun Ferðagjafar með gildistíma frá 1. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021.

„Markmið ferðagjafar er að hvetja fólk til að ferðast vítt og breitt um landið, ásamt því að hvetja fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar til þátttöku í verkefninu, með því að bjóða upp á fjölbreytt tilboð og tækifæri, líkt og síðasta sumar en átakið mæltist vel fyrir og hafði jákvæð áhrif á fólk og fyrirtæki,“ segir Þórdís Kolbrún.

812 fyrirtæki og tæplega 200 þúsund einstaklingar

Ferðagjöf stjórnvalda er tímabundið úrræði, sem sett var á fót síðastliðið sumar, í þeim tilgangi að hvetja landsmenn til að ferðast innanlands og nýta Ferðagjöfina hjá ferðaþjónustuaðilum. Gjöfin er hluti aðgerða ríkisstjórnarinnar til að efla efnahagskerfið og draga úr þeim neikvæðum áhrifum sem kórónaveirufaraldurinn hefur haft í för með sér á atvinnulífið, þá sér í lagi íslenska ferðaþjónustu. Íslendingar létu ekki sitt eftir liggja á síðasta ári en frá gildistöku laganna í júní 2020 þar til í apríl 2021 höfðu tæplega 200 þúsund einstaklingar sótt Ferðagjöfina af þeim 280 þúsund sem fengu hana útgefna. Þá hafa 812 fyrirtæki verið skráð til þátttöku. Með endurnýjun Ferðagjafar 2021 eru einstaklingar hvattir til að ferðast innanlands í sumar, rétt eins og síðastliðið sumar, eftir því sem aðstæður leyfa.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is