18.12.2020
Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri hefur átt í viðræðum við fulltrúa HSU, Sjónlags og Sjúkratryggingar Íslands um frumkvöðlaverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu í Vestmannaeyjum.
Um er að ræða augnlæknaþjónustu sem fulltrúa Sjónlags og HSU hafa verið að þróa. Fyrir liggja drög að samningi um þjónustu Sjónlags í Eyjum, en Lions hreyfingunni var veittur styrkur til kaupa á nauðsynlegum tækjabúnaði til að veita slíka þjónustu.
Tækin hafa verið fjármögnuð að mestu með styrk frá Lions og fyrirtækjum í Vestmannaeyjum. Að auki var veittur styrkur til viðbótar í gegnum verkefni stjórnvalda sem sett var á laggirnar af fjármála- og efnahagsráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Valnefnd, sem skipuð var af ráðuneytunum mat verkefnin út frá nýsköpunargildi, áhrifum á heilbrigðisþjónustu, framkvæmd, markmiðum og árangri. Nútímavædd augnlæknaþjónusta á landsbyggðinni – pilot í Vestmanneyjum, var eitt af 12 verkefnum sem valin voru úr 48 umsóknum.
Tækin verða staðsett í Vestmannaeyjum og eign HSU í Eyjum. Vestmannaeyjabær hefur aðstoðað við undirbúning verkefnisins, sem mun auka þjónustustig. Með því skapast tækifæri á að minnka kostnað hins opinbera og kostnað landsbyggðarfólks sem ekki þarf lengur að leita eftir slíkri þjónustu í Reykjavík.
Bæjarráð fagnar þessu frábæra frumkvæði Lions hreyfingarinnar í Vestmannaeyjum og þátttöku annarra aðila og hvetur Sjúkratryggingar Íslands og HSU til þess að ljúka hið fyrsta við þá samninga sem þarf að gera til þess að hægt sé að koma verkefninu af stað.
Forsíðumynd er skjáskot af vefsíðu sjónlags.

