Nú eru það Austfjarðamið hjá Vestmannaeyjaskipunum

16.09.2020

Ísfisktogarar Bergs-Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, eru nú að veiðum á Austfjarðamiðum. Vestmannaey landaði á Eskifirði á laugardagskvöld og Bergey landaði í Neskaupstað í gær. Blaðamaður hjá vef Síldarvinnslunnar hafði samband við Egil Guðna Guðnason stýrimann á Vestmannaey og Jón Valgeirsson skipstjóra á Bergey og spurði frétta.
Egill Guðni sagði að það væri notalegt að koma til löndunar á Eskifirði. „Við lönduðum í mínum gamla heimabæ. Við höfðum einungis verið um tvo daga að veiðum en þá þurfti einn úr áhöfninni á læknisaðstoð að halda og því var farið í land. Við lönduðum um 40 tonnum af blönduðum afla sem fékkst í Berufjarðarálnum. Að lokinni löndun fórum við strax út og héldum norður á Glettinganes. Þar stoppuðum við í sólarhring og erum komnir aftur suður í Berufjarðarál. Það er í augnablikinu heldur rólegt hjá okkur en það hlýtur að lagast. Ég held að áformað sé að landa fyrir austan á fimmtudag eða föstudag,“ segir Egill Guðni.
Jón Valgeirsson sagði að Bergey hefði landað hátt í 70 tonnum í Neskaupstað í gær. „ Við fengum aflann í Berufjarðarálnum og á Breiðdalsgrunni Þetta var blandaður afli en fínasti fiskur. Þá var veðrið alveg frábært, sannkölluð bongóblíða. Að lokinni löndun reyndum við fyrir okkur í Seyðisfjarðardýpinu en þar var heldur tregt. Við erum því aftur komnir í Berufjarðarálinn og hér er þokkalegt kropp. Það stendur til að landa hér fyrir austan á fimmtudag,“ segir Jón.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is