Mánudagur 16. nóvember 2026

Nú er sumarvinnu Vestmannaeyjabæjar lokið

Nú fer senn að líða að vetri og ekki seinna vænna en að horfa yfir farinn veg. 

Í sumar voru tveir umhverfis hópar starfandi hjá Vestmannaeyjabæ og voru um 40 einstaklingar 17 ára og eldri í sumarstörfum.

Um 40 einstaklingar voru starfandi hjá Vestmannaeyjabæ við umhverfisstörf í sumar. Starfræktir voru tveir hópar sem störfuðu undir stjórn Breka Ómarssonar og Ásgeirs H. Hjaltalíns. Með hópunum starfaði Eiríkur Ómar Sæland garðyrkjufræðingur sem veitti góða ráðgjöf og stuðning. Eiríkur hefur aðstoðað Vestmannaeyjabæ síðustu ár og hefur hann komið inn með góða þekkingu sem nýst hefur hópunum vel.

Í sumar var einnig starfræktur Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar en þar hafa ungmenni frá 8. – 10. bekk tækifæri til þess að sækja um starf við umhverfisstörf. Um 60 ungmenni voru starfandi hjá bænum í sumar og gekk vinnan þeirra vel.

Hér er hægt að skoða nokkrar myndir sem að Eiríkur tók og má þar sjá hluta af því starfi sem unnið var í sumar.

 

 

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search