03.02.2020
Fyrir ykkur sem eruð byrjuð að plana sumarið og viljið vera fyrst að bóka í Herjólf þá er besta leiðin til þess að skrá sig á póstlista hjá Herjólfi, þannig færðu allar upplýsingar um leið og opnar fyrir bókanir í stóru helgarnar.
Í tilkynningunni frá Herjólfi segir:
Sumarið 2020 er handan við hornið, og margir farnir að huga að bókunum í Herjólf. Því langar okkur að bjóða þeim sem ætla sér að ferðast með okkur á þeim tímasetningum sem lokað er fyrir bókanir að svo stöddu, að skrá sig á póstlista hjá okkur.
Um er að ræða eftirfarandi dagsetningar: 9-14.júní vegna Tm mót. 23-28. júní vegna Orkumót. 29-5 ágúst vegna Þjóðhátíð.
Til þess að skrá sig á póstlista, þarf að senda tölvupóst á herjolfur@herjolfur.is og setja viðeigandi dagsetningar í viðfangsefni.
Forsíðumyndina tók hann Hólmgeir Austfjörð