Lögreglan í Vestmannaeyjum biðlar enn til fólks um að vera ekki á ferðinni að óþörfu
Þar sem götur er illfærar og bílar eru einnig fastir hér og þar. En seint í gærkvöldi hættu Björgunarfélagsmenn að losa bíla og einbeittu sér að því að koma fólki heim til sín.
Mjög erilsamt hjá Lögreglu og Björgunarfélagi Vestmannaeyja
Það var mjög erilsamt hjá Lögreglu og Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Nokkur útköll voru vegna hættu á foktjóni en aðallega voru viðbragðsaðilar að aðstoða bæjarbúa við að komast til síns heima segir Símon Geirsson Lögreglumaður í Vestmannaeyjum þegar blaðamaður Tíguls heyrði í honum nú í morgunsárið.
Þrjú útköll vegna foktjóns í nótt
Blaðamaður Tíguls heyrði í Arnóri Arnórssyni hjá Björgunarfélagi Vestmannaeyja klukkan átta nú í morgun. Það voru þrjú útköll vegna foktjóns í nótt sem farið var í. Mest var verið að aðstoða fólk við að komast heim. Það eru bílar en fastir við Áshamar og Kröflu, þar sem besta í stöðunni var að skilja bílana eftir og keyra fólki heim segir Arnór lokum.
Tígull fékk sendar þessar myndir í gærkvöldi frá Ingibjörgu A. Brynjarsdóttir. En blaðamaður Tíguls ákvað að hlýða Lögreglu og halda sig heima enda ekki á jeppa því miður. En eins og sjá má hér er var bærinn dáldið eins og draugabær.












