Föstudagur 13. nóvember 2026

Nói Síríus var­ar við svika­hröpp­um

Nói Síríus varaði við svindl­um á Face­book-síðu sinni fyrr í dag og sagði óprúttna aðila hafa sett upp síður á Face­book í nafni Nóa Síríus­ar. Er fólk þá beðið um að samþykkja ekki vina­beiðnir frá slík­um síðum.

Í tilkynningu frá Nóa segir:

Aftur virðast óprúttnir aðilar hafa sett upp svindlsíður með nafni Nóa Síríus á Facebook og við ætlum að biðja ykkur um að samþykkja ekki slíkar vinabeiðnir.

Tilgangurinn er sem fyrr að ná persónuupplýsingum með óheiðarlegum hætti með því að gabba fólk til að skrá inn persónuupplýsingar, jafnvel kortanúmer. Við minnum á að í gjafaleikjum á aldrei að gefa upp slíkar upplýsingar enda er aldrei beðið um þær nema um vafasaman tilgang sé að ræða. Verum því áfram á varðbergi fyrir svikahröppum.

Lesum textann vel og vandlega yfir því oftar en ekki eru slíkar svindlsíður með ákaflega bjagaðri íslensku, og slíkt ætti því alltaf að hringja viðvörunarbjöllum. Ef beðið er um persónuupplýsingar eða kortanúmer skal tilkynna síðuna hið snarasta með því að smella á Tilkynna/report.

Með góðri kveðju,
Starfsfólk Nóa Síríus.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search