Niðurstöður loðnumælinga við Papey

25.02.2020

Fram hefur komið í fréttum að loðnuskipin Börkur, Polar Amaroq og Hákon voru á loðnumiðunum og kortlögðu fremsta hluta loðnugöngu skammt undan Papey á sunnudag.

Hafrannsóknastofnun hefur fengið í hendur bergmálsgögn af mælum skipanna og er bráðabirgðamat að þarna sé nálægt 90 þús. tonn af loðnu. Hafrannsóknastofnun telur, út frá fyrirliggjandi gögnum, líkur á að umrædd loðnuganga sé sú sama og var mæld út af norðuausturhorninu fyrr í mánuðnum. 

Þessar niðurstöður gefa ekki tilefni til breyttrar ráðgjafar. Um var að ræða stóra hrygningarloðnu, en á Hafrannsóknastofnun er nú verið er að vinna loðnusýni frá svæðinu. Takmörkuð yfirferð veiðiskipa á sunnudag er sú fjórða í röðinni á árinu, engin hinna þriggja fyrri sem allar voru heildstæðari gaf tilefni til ráðgjafar um að opna fyrir veiðar.

Hafrannsóknastofnun fylgist áfram með þróun á loðnumiðum í samráði við útveginn og mun fara yfir skráningar Polar Amaroq sem er áfram á miðunum jafnharðan og þær berast.

Greint er frá þessu á vef hafogvatn.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is