Úthlutunarnefnd, sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla árið 2021, hefur lokið störfum í ár
Úthlutunarnefnd skipa Árni Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður, Stefán Svavarsson endurskoðandi og Valgerður Anna Jóhannsdóttir, lektor við Háskóla Íslands. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra.
Alls bárust 23 umsóknir um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals var sótt um rekstrarstuðning að fjárhæð 880 millj. kr. Tveimur umsóknum var synjað og tveimur umsóknum vísað frá, þar sem þær bárust eftir lögbundinn frest.
Í i-lið 62. gr. laga um fjölmiðla kemur fram að rekstrarstuðningur skuli að hámarki vera 25% af stuðningshæfum rekstrarkostnaði umsækjenda. Þá ráðist endanlegt hlutfall af umfangi og fjölda umsókna. Til úthlutunar voru 392 millj. kr. að frádregnum kostnaði vegna umsýslu, auglýsinga, þóknunar fyrir störf úthlutunarnefndar o.fl. sem var um 0,8% af heildarfjárhæð eða 3.152.661 kr. Til úthlutunar voru því 388.847.339 kr.
Samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar hljóta eftirfarandi 19 fjölmiðlaveitur rekstrarstuðning árið 2021: