Þriðjudagur 17. nóvember 2026
Fiskiðan

Niðurstaða komin um rekstur stafrænnar smiðju – Fab Lab

Bæjarráð fjallaði um drög að samningi um rekstur stafrænnar smiðju á fundi sínum þann 17. febrúar

„Það er afar ánæjulegt að það sé loksins komin niðurstaða um rekstur stafrænnar smiðju í Vestmannaeyjum, bærinn leggur til húsnæði undir starfsemina á 3 hæð Fiskiðjunnar. Stafrænna smiðjan var rekin af Nýsköpunarmiðstöð Íslands í aðstöðu Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum þar til um síðustu áramót,, segir Íris í samtali við Tígul.

„Starfsemi stafrænnar smiðju er ætlað að efla nýsköpun- og frumkvöðlastarfsemi á þeim svæðum sem þau eru starfrækt. Sérstök áhersla verður á að hvetja ungt fólk til nýsköpunar, en jafnframt aðra áhugasama einstaklinga,, segir Íris að lokum.

Bæjarstjórn  fundaði um málið þann 25. febrúar síðast liðin. þar sem ákveðið var að fela bæjarráði framgang málsins og ljúka við gerð samnings um rekstur smiðjunnar í ljósi þess að ekki liggur fyrir endanlegt eintak af samningi þar sem ráðuneytin eiga eftir ljúka ákveðnum þáttum.

Lögð voru fyrir bæjarráð drög að samningi um rekstur stafrænnar smiðju og viljayfirlýsing um samstarf atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Þekkingarseturs Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar um starfrækslu stafrænnar smiðju.

Bæjarráð ræddi einnig stærð og þörf á aðstöðu stafrænnar smiðju á 3. hæð Fiskiðjunnar.

Bæjarráð samþykkir efni og fyrirkomulag samnings og samstarfsyfirlýsingar aðila um rekstur stafrænnar smiðju í Vestmannaeyjum. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að fylgja málinu eftir gagnvart samningsaðilum og undirrita samninginn og yfirlýsinguna f.h. Vestmannaeyjabæjar.

Bæjarráð samþykkir að koma starfsemi stafrænnar smiðju fyrir í aðstöðu á bilinu 120-150 fermetrum á þriðju hæð Fiskiðjunnar og felur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að fylgja málinu eftir í starfshópi um húsnæðismál Vestmannaeyjabæjar.

Hlutverk Fab Lab Vestmannaeyjar

Fab Lab Vestmannaeyja sinnir fræðslu og þjálfun til kennara í grunn- og framhaldsskólum með árlegum námskeiðum á þeim þremur árum sem samningurinn nær til.

Námskeiðin eru fræðsla í notkun á hugbúnaði fyrir Fab Lab ásamt fræðslu og þjálfun í notkun á tækjum Fab Lab smiðjunnar.
Verkefnastjóri leiðir tæknilega þróun smiðjunnar og samstarf við notendur hennar ásamt því að miðla þekkingu.

Fab Lab smiðjan skuldbindur sig til að halda námskeið sem tengjast stafrænni framleiðslutækni og nýsköpun fyrir almenning. Fab Lab smiðjan sér til þess að nemendur og kennarar í grunn- og framhaldsskólum, ásamt almenningi og fyrirtækjum, fái aðgang að smiðjunni samkvæmt nánara samkomulagi.

Hlutverk Þekkingarseturs Vestmannaeyja

Fab Lab Vestmannaeyjar er hluti af starfsemi Þekkingarseturs Vestmannaeyja ses. og er verkefnastjóri smiðjunnar starfsmaður Þekkingarseturs Vestmannaeyja frá 1. apríl 2021.

Yfirmaður hans er framkvæmdastjóri ÞSV. Bókhald, tekjur, gjöld og uppgjör og hvers konar umsýsla vegna reksturs Fab Lab Vestmannaeyja, ásamt því sem tilheyrir samstarfi Fab Lab smiðjanna um allt land, verður haldið aðskildu í bókhaldi ÞSV.

Hér má svo lesa allan samninginn: Samningur um Fab lab Vestmannaeyjar 2021-2023 ARN.pdf

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search