Miðvikudaginn 8. desember hafa 750 manns verið boðaðir í bólusetningu vegna covid. Eru það flestir einstaklingar sem boðaðir eru í örvunarskammt og ættu einstaklingar sem bólusettir voru fyrir 6 mánuðum eða lengur núna að hafa fengið boð. Bólusett verður í Íþróttahúsinu.
OPINN TÍMI verður klukkan 15 er og er sá tími ætlaður fyrir einstaklinga sem ekki teljast fullbólusettir, það hafa enga bólusetningu þegið eða 1 af pfizer eða Astrazenica eða hafa verið fullbólusettir fyrir meira en 6 mánuðum en ekki fengið boð í örvunarskammt.
Althugið að hafi fólk fengið covid –smit á síðast liðnum 6 mánuðum á það ekki að mæta.
21. desember er næsta bólusetning gegn covid 19 áætluð
Þeir sem ekki hafa fengið boð en telja sig eiga að mæta er bent á að hafa samband við heilsugæslu , sími 4322500. Einnig eru þeir sem ekki eru fullbólusettir beðnir um að hafa samband og láta skrá sig.
Inflúensubólusetningar
Við veljum hvetja fólk til að mæta í inflúensubólusetningar, sérstaklega einstaklinga yfir 60 ára og einnig þá sem eru með undirliggjandi áhættuþætti. Svo sem hjarta og lungnasjúkdóma, veiklað ónæmiskerfi vegna sjúkdóma eða lyfja og sykursýki. Hægt er að mæta á heilsugæsluna kl 14 – 15 á morgun eða láta skrá sig sig á öðrum tíma.