9 sólahringar búnir í föstu
Ég er svangur. Ég stóð sjálfan mig að því að vera að læka matarstatusa á facebook og skoða mataruppskriftir, eitthvað sem ég man ekki eftir að hafa gert áður. Hluti af þessu er að ég veit að ég er að klára og hugurinn er aðeins byrjaður að fara þangað.
Mér líður líka svona eins og ég hafi léttan doða og litla orku en um leið og ég fer að gera eitthvað þá er samt alltaf nóg orka eftir.
Mér hefur að öðru leyti liðið furðu vel, en með hverjum deginum þá verð ég þreyttari seinni partinn og þarf að sofa aðeins meira.
Hausinn er samt áfram mjög skýr og einbeiting góð, bænir sterkar og andleg líða bara nokkuð sterk.
Mælingar dagsins:
Ketónar: 6,5 mmol/L (var 5,2 í gær). Fitubrennsla er aftur kominn á keppnishraða og eina sem ég get tengt við að hún datt aðeins niður var að ég tók létt inngrip með söltum og steinefnum fyrir tveim kvöldum.

Glúkósi: 4,2 mmol/L (var 4,5 í gær). Þetta er í takt við það sem ég bjóst við að sjá
Þyngd: 76,6 (var 77,6 í gær). kíló á einum degi er slatti. Þannig að brennslan er greinilega hrokkinn aftur í gang.