Föstudagur 13. nóvember 2026

Næs alla daga vikunnar

Veitingastaðurinn NÆS verður opinn sjö daga vikunnar frá hádegi fram á kvöld til jóla, til að byrja með og þá verður tekin staðan hvernig þau ætla að hátta restina af vetrinum. „Við vilju byggja NÆS upp sem stað sem er með fjölbreytta þjónustu.“ sagði Gísli Matthías sem er mjög spenntur fyrir vetrinum.
„Að sjálfsögðu er mikilvægt að fólk nýti sér þjónustuna svo það sé hægt að halda opnu eins mikið og hægt er.“

 

Verður Sælkerabúð Slippins eitthvað opin? 

„Við höfum ákveðið að við verðum ekki með sælkerabúð Slippsins í ár því miður! 

En við ætlum að taka upp fiskibakkana aftur í nóvember og bjóða upp á, í allan vetur, glænýja fiskrétti sem verða tilbúnir í ofninn heima, með einföldum eldunarleiðbeiningum. Hægt verður að vera í áskrift sem verður ódýrara eða panta með dags fyrirvara. Einnig ætlum við að bjóðs upp á sælkerakörfurnar sem voru svo vinsælar sem og nauta-wellington en í þetta skipti bara fyrir áramót.

Í byrjun desmeber munum við svo bjóða upp á frábæra jólaveislu á Slippnum sem við erum að fara að auglýsa. Auk þess verðum við með skemmtilegan jóla­smakkseðil á NÆS.“

 

Hvaða nýjungar eru í boði?

„Við höfum nú þegar bætt nokkrum réttum inn á kvöldmatseðillinn á Næs og svo erum við að byrja með hádegishlaðborð á hagstæðu verði þar sem matseðillinn birtist á facebooksíðu okkar vikulega. Einnig verður hægt að koma í smárétti og fá fisk dagsins ef fólk kýs það heldur. 

Þá ætlum við einnig að byrja með öflugan take-away seðil sem hægt verður að panta í síma eða um netkerfið okkar. 

Í nóvember ætlum við svo að opna NÆS veisluþjónustu sem mun geta séð um veislur af öllum stærðum og gerðum fyrir hvaða tilefni sem er.“

 

Hvað með eins og drykkjarseðilinn, ertu með þar einhverja framandi og skemmtilega drykki?

Kokteilaseðillinn á NÆS er mjög skemmtilegur. Svo erum við líka að brugga kombucha, áfengislaust gerjað te, sem er í senn bragðgott og áhugavert. 

 

Hvernig hefur sumarið verið?

„Sumarið var algjörlega frábært á báðum stöðum bæði Slippnum og NÆS. Við vorum heppin með frábært starfsfólk sem skilaði frábæru sumri. 

Nú erum við full tilhlökkunar fyrir vetrinum sem hefur alltaf verið erfitt að tækla hér í Eyjum. En við vonum að með bættri þjónustu muni það takast.“

 

Hvernig fannst þér Matey ganga?

„Matey gekk vonum framar, þetta er viðburður sem á bara eftir að stækka. Það var magnað hvernig ferðaþjónustan og matvælafyrirtækin tóku höndum saman að gera enn einn flotta viðburðinn sem við Vestmannaeyingar eigum.“

 

Hvernig líkaði gestakokkunum þínum að koma til Eyja og vera með rétti fyrir Eyjamenn?

„Þau alveg elskuðu að koma og taka þátt í þessu með okkur og sama má segja um okkur og okkar starfsfólk sem lærðum mikið af þessu.“

Eitthvað að lokum?

„Það verður gaman að taka á móti Vestmannaeyingum í vetur. Við viljum hvetja fólk að koma og prufa.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search