Mbl.is greinir frá að í Morgunblaðinu í dag er umfjöllun um undirbúning regluverk og viðmið um rekstur öryggismyndavéla.
Á vettvangi ríkislögreglustjóra eru nú í undirbúningi regluverk og viðmið um rekstur öryggismyndavéla, sem eru víða. Á Suðurlandi hafa slík tæki verið sett upp við Hveragerði, í Árborg, á Hellu og á Hvolsvelli svo nokkrir staðir séu nefndir. Þá stendur til að setja upp myndavélar við Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði.
„Við höfum átt samtöl við fulltrúa sveitarfélaga um þessi mál – en við viljum að frumkvæðið í myndavélavæðingu komi frá þeim,“ segir Oddur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag
Forsíðumynd: Lögreglan á Suðurlandi.

