ÍBV mátti sætta sig við tap gegn Breiðabliki
ÍBV tók á móti Breiðabliki á Hásteinsvelli laugardaginn 26. september í efri hluta Bestu deildar kvenna. Eyjakonur komust yfir á 38. mínútu þegar Allison Patricia Clark skoraði eftir hornspyrnu og leiddu 1–0 í hálfleik.
Breiðablik sótti af krafti eftir hlé, en Guðný Geirsdóttir varði vel í marki ÍBV. Agla María Albertsdóttir jafnaði úr vítaspyrnu á 69. mínútu og Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði sigurmark Blika tíu mínútum síðar. Lokatölur urðu 1–2.
Myndir: Addi í London fyrir Tígul.













