Í nótt voru unninn eignaspjöll á Ráðhúsi Vestmannaeyja
Spreyjað var XD á húsið, þegar Tígull kom á svæðið var búið að fjarlægja krotið af húsinu.
En það vildi svo til að blaðamaður Tíguls átti leið fram hjá Ráðhúsinu um klukkan 01:20 í nótt og tók eftir allavega tveimur ungum einstaklingum á hlaupum á svæðinu, og fannst blaðamanni þetta skrítið þar sem klukkan var þetta seint og reyndi að sjá betur hvað væri um að vera en sá þá ekki neitt meira athyglisvert og hélt leiðar sinnar áfram.


