Um borð í þessum gömlu uppsjávarveiðiskipum er fríborðið ekki mikið þegar búið er að fylla allar lestar. T.d. á Ísleifi eru einungis örfáir sentimetrar eftir þar sem hann er lægstur á sjónum. Þetta hefur ætíð ,,reddast“ hingað til á honum Ísleifi en verst er þó þegar skipið er orðið mjög hlaðið og það er verið að kasta og draga nótina, þá er slysahættan mjög mikil. En á Ísleifi eru vanir sjómenn sem eftir langa starfsreynslu geta metið aðstæður hverju sinni með þeim hætti að menn koma heilir heim til sín í lok veiðiferðar.
Texti og mynd birt með leyfi frá Þorbirnir Víglundsyni, þessi mynd var tekin fyrir nokkrum árum.
