Góður félagi okkar í ÍBV- íþróttafélagi Þórunn Ingibjörg Ingvarsdóttir er látinn eftir stutta en erfiða baráttu við við alvarleg veikindi . Þórunn var fædd í Neskaupstað 18 febrúar 1954 og lést hér í Eyjum 21 mars s,l.
Þórunn kom snemma öflug að starfi íþróttanna hér í Eyjum, fyrst hjá Knattspyrnufélaginu Týr og svo að starfsemi Í.B.V. íþróttafélags eftir stofnun þess 1996. Hún sat í stjórn félagsins á annan áratug og var jafnan einn að burðarásum í Pæju og Shellmótunum félagsins.
Henni hlotnaðist ýmsar viðurkenningar fyrir langt og gott starf sitt við íþróttahreyfinguna. Hún var sæmt silfurmerki Íþróttabandalags Vestmannaeyja 2004 , þá hlaut heiðursskjöld Íþróttabandalagsins 2010 fyrir mikla og gæfuríka þátttöku við íþróttahreyfinguna í Vestmannaeyjum.
Félagar í Í.B.V. -íþróttafélagi kveðja með söknuði góðan félaga og þakka henni fyrir samfylgdina. Við sendum eiginmanni og börnum hennar og ættingjum okkar innilegustu samúðarkveðjur.
f.h. Í.B.V – íþróttafélags
Þór Í.Vilhjálmsson
formaður

