Kæri vinur.
Í dag þegar ættingjar og vinir þínir horfa á eftir þér, stöndum við í djúpri sorg og söknuði en eigum góðar og sterkar minningar um þig.
Leiðir okkar lágu fyrst saman í árslok 1985, þú nemi í Stýrimannaskólanum í Eyjum og varst að afla þér tekna með fram náminu með því að taka af þér þau verkefni sem buðust. Ég réri á Álsey VE 502 en báturinn átti að fara í slipp um jólin fram í janúar. Þú hafðir tekið að þér að háþrýstiþrífa lestina. Ég hafði oft heyrt talað um þig en þarna kynntumst við. Þessi kynni urðu að vináttu sem entist ævilangt.
Vinátta okkar styrktist þegar þið Grétar Már sonur minn hófuð samstarf í gegnum sameiginlegt áhugamál, hestamennskuna og leið þín lá oft á heimili mitt meðan Grétar bjó ennþá í foreldrahúsi. Ykkur Grétari tókst að gera gamla kindakofann hans pabba á Haugunum fínan fyrir hestana ykkar.
Vinátta ykkar Grétars var alla tíð mikil. Oft þegar þú hringdir voru fyrstu spurningarnar “veist þú hvar sonur okkar er, er sonur okkar heima eða hefur þú heyrt í syni okkar?”. Þetta voru notaleg símtöl sem sýndu mér hvað vinátta ykkar var mikil.
Á tímabili þegar ég var formaður Bændasamtaka Vestmannaeyja sá ég hve mikill félagsmaður þú varst. Sjómennskan er harður húsbóndi en alltaf mættir þú á fundi þegar þú varst í landi og tókst virkan þátt í starfinu þegar svo bar við.
Þú varst líka mikill félagsmaður hjá Sjómannadagsráði Vestmannaeyja, varst í áratugi fánaberi Verðanda á sjómannadaginn, að lokinni messu í Landakirkju þar sem minnst var hrapaða og drukknaða Eyjamanna.
Aftur lágu leiðir okkar saman en nú á nýjum vettvangi, á fundum karladeildar Krabbameinsfélags Vestmannaeyja þegar vágesturinn krabbamein barði að dyrum hjá þér. Þú tókst á því sem hverju öðru verkefni með það fyrir augum að eiga sigur. Því miður lauk baráttu þinni öðruvísi en við vonuðumst eftir.
Kæri vinur. Þar sem þú ert kominn á stað ljóssins, vil ég þakka þér fyrir allan þann góða vinskap sem var okkar á milli og milli þín og Grétars sonar okkar. Ég sendi Helen og börnunum, tengdabörnum og barnabörnum mínar dýpstu samúðarkveðjur og bið algóðan Guð um að styrkja þau í þeirri miklu sorg sem þau fara í gegnum núna, og vera með þeim.
Óskar Pétur Friðriksson
Hér eru myndir sem Óskar Pétur hefur tekið í gegnum tíðina.


