14.02.2020 kl 14:50
Tígull fór og hitti á Ívar Atlason tæknifræðing hjá HS Veitum og við fengum hann til að útskýra vel ástæðuna fyrir því hvers vegna allir þurfa að spara rafmagnið og þá hversvegna til dæmis Íþróttamiðstöðin er lokuð.
Hérna fyrir neðan eru varaaflsvélarnar sem gefa okkur rafmagnið í augnablikinu, þær duga ekki fyrir rafmagni fyrir allan bæinn svo það er mjög mikilvægt að hlusta vel á hann Ívar og fara eftir þessum fyrirmælum svo að hægt sé að halda rafmagni á öllum heimilum. Því ef ein vél gefur sig þá fara allar vélarnar út, þess vegna hafa þeir í HS Veitum þurft að taka út rafmangið í skamman tíma af einu hverfi til að lofa vélunum að jafna sig þegar of mikið álag er komið svo að allar gefi sig ekki.
varafl starfsmenn