Laugardagur 17. október 2026

Mikið siglt og víða leitað eftir afla

Bergey VE landaði um 55 tonnum í Grindavík í gær og Vestmannaey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í morgun. Þessa dagana er ekki mikil veiði fyrir sunnan land en þokkalegur afli hefur fengist úti fyrir suðausturlandinu. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk hjá þeim fréttir af gangi mála.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn hefði verið heldur rólegur enda hefðu þeir verið að veiðum suður af landinu. “Við byrjuðum á Reynisdýpinu og reyndum þar við ufsa með litlum árangri. Síðan var haldið á Pétursey og Vík og þar vorum við það sem eftir var af túrnum og aflinn var þorskur og ýsa. Holin voru mjög misjöfn, stundum þokkaleg en heldur léleg þess á milli. Bestu holin fengum við yfirleitt þegar var að skyggja. Í næstu túr verður farið á karfa og vonandi gengur það vel,” sagði Ragnar Waage.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að víða hefði verið farið í þessum túr. ” Það var mikið siglt og víða leitað. Á fimmta sólarhring fóru í túrinn og það voru tekin 17 hol sem er mikið. Við byrjuðum á að leita að ufsa með litlum árangri og síðan var haldið austur eftir og víða reynt. Túrinn hófst á Pétursey og síðan var haldið á Vík, í Reynisdýpið, á Síðugrunn og á Ingólfshöfða. Farið var á Öræfagrunn þar sem við fengum ýsuskot en það reyndist skammvinnt. Að því loknu var farið í Breiðamerkurdýpi, í Sláturhúsið og í Lónsdýpið. Endað var loks á Langabanka þar sem fékkst þokkalegt af þorski. Það var semsagt víða farið og það var fínasta veður allan tímann. Í dag verður landað og síðan haldið til veiða á ný seinni partinn á morgun,” sagði Birgir Þór.

Frétt frá svn.is

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search