Mexíkó kjötbollur
Hráefni:
Kjötbollur
500 g nautahakk
100 g mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
1⁄2 stk. laukur
4 stk. hvítlauksgeirar
1 msk. chillikrydd
1 tsk. cumin
1 tsk. paprikukrydd
1 tsk. salt
1⁄2 tsk. pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C og setjið smjörpappír á bökunarplötu.
Setjið öll innihaldsefni saman í matvinnsluvél og hakkið þar til allt hefur blandast vel saman.
Gott er að skera hvítlaukinn gróflega niður ásamt lauknum.
Myndið litlar kjötbollur og raðið þeim á bökunarpappírinn. Einföld uppskrift dugar í um 40 bollur.
Eldið bollurnar í 12-15 mínútur.
Bollurnar eru bestar heitar og gott er að bera fram með þeim með hrísgrjón, quacamole eða pico de gallo
Pico de gallo
Hráefni:
2 stk. þroskaðir tómatar
1⁄2 stk. laukur
handfylli af kóríander
safi úr hálfri límónu
salt og pipar
Aðferð:
Skerið tómatana og laukinn smátt niður og blandið saman. Saxið kóríander og setjið saman við ásamt safa úr límónu og salti og pipar.
Gott að bera fram með nachos og hrísgrjónum.