Laugardagur 30. september 2023
Austfjörð

Mesta lækkun í rúman áratug

25.11.2020

Verð á sjávarafurðum lækkaði um rúm 1,4% í erlendri mynt í október frá fyrri mánuði samkvæmt verðvísitölu sjávarafurða sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Miðað við október í fyrra hefur verð á sjávarafurðum lækkað um 7,5% í erlendri mynt. Á þann kvarða hefur lækkunin ekki verið meiri í rúman áratug, eða síðan í árslok 2009. Þetta er verulegur viðsnúningur frá þeirri þróun sem átti sér stað fyrir COVID-19, eins og blasir við á myndinni hér fyrir neðan, enda hafa markaðsaðstæður fyrir sjávarafurðir verið afar erfiðar frá því heimsfaraldurinn skall á. Verðlækkanir hafa jafnframt heldur verið að færast í aukana eftir því sem liðið hefur á árið, enda hefur faraldurinn farið aftur á flug og sóttvarnaraðgerðir samhliða því.

 

 

Mismikil lækkun
Þróunin á afurðaverði er þó talsvert mismunandi eftir einstaka afurðaflokkum og tegundum, enda eru sjávarafurðir afar fjölbreyttar og fluttar út til mismunandi landa og á ólíka markaði. Það má til að mynda sjá á myndinni hér fyrir neðan sem sýnir tólf mánaða breytingu á verði botnfiskafurða í erlendri mynt frá ársbyrjun 2019. Þar má sjá að í október höfðu ferskar botnfiskafurðir lækkað minnst í verði en skreið mest. Í heild hafa botnfiskaafurðir þó lækkað talsvert minna í verði en aðrir tegundahópar miðað við verðvísitölur Hagstofunnar. Þannig hafði verð á botnfiskaafurðum lækkað um tæp 5% á milli ára í október á sama tíma og verð á skelfiski hefur lækkað um rúm 13% og á uppsjávarafurðum um 17%.

 

 

Endurskoðaðar tölur væntanlegar
Ofangreind þróun á verðvísitölu sjávarafurða styður þá ályktun, sem kom fram í grein á Radarnum í byrjun þessa mánaðar, að afurðaverð hafi spilað talsverða rullu í þeim samdrætti sem átti sér stað í útflutningsverðmætum sjávarafurða í október. Það mun koma betur í ljós þegar Hagstofan birtir tölur um vöruviðskipti fyrir janúar til október, en þá mun liggja fyrir sundurliðun á því hvernig útflutningsverðmæti sjávarafurða í október skiptist niður og hvert útflutt magn var. Birting á þeim tölum hefur verið flýtt, en samkvæmt fréttatilkynningu Hagstofunnar frá því í morgun verða tölurnar birtar á fimmtudaginn í stað mánudags í næstu viku. Auk hefðbundinnar útgáfu mun Hagstofan einnig birta endurskoðaðar tölur um utanríkisverslun nokkur ár aftur í tímann, og án efa munu verða einhverjar breytingar á tölum um útflutning á sjávarafurðum.

 

 

Nýjustu fréttir af vef sfs.is 
– Vist­vænn kælimið­ill
– Hvernig stönd­um við?
– Verð­mæti koma ekki af sjálfu sér

Forsíðumynd. Hólmgeir Austfjörð

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is