Föstudagur 1. desember 2023

„Mér líður eins og ungfrú Snæfells- og Hnappadals[sýslu] núna,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson

Kári Kristján með gullmola eftir leikinn í dag, það ekki annað hægt en að elska þennan dreng.

„Mér líður eins og ungfrú Snæfells- og Hnappadals[sýslu] núna,“ sagði Kári Kristján Kristjánsson eftir 31-30 sigur Íslands á Danmörku á EM karla í handbolta í dag sem er vísun í kvikmyndina Nýtt líf frá 1983.

„En muna að halda fókus,“ segir Kári Kristján sem var duglegur að fagna upp í stúku og rífa stemninguna með sér.

„Er ég ekki maður fólksins? Ég er bara þar, maður er bara peyji úr Eyjum, bara slakur. En ég er bara þessi týpa af manni og ef þú velur mig í þetta verkefni þá færðu þetta.“ segir Kári.

En er Kári Kristján þá að svara kallinu eftir að hafa verið utan hóps á síðasta stórmóti?

„Tja, ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Ég stend bara fyrir þessum handbolta. Ég er þungur, minn styrkur er að vera hnoðmörast í einhverjum gæjum og þeir höfðu bara ekki nógu mörg svör við því, Danirnir, í dag. Sem er bara vel fyrir mig og okkur og þjóðina.“

„Fyrir mig að koma úr Bandalaginu [ÍBV] og spila svo með einum besta handboltamanni í heimi, það er alveg geðveikt. Auðvitað er ég að njóta þess alveg í botn. Þannig að það er bara meiriháttar.“ segir Kári Kristján.

Sjón er sögu ríkari en stórskemmtilegt viðtal RÚV við Kára Kristján má sjá í spilaranum að ofan. Að neðan má sjá viðtal við Ólaf Andrés Guðmundsson.

Hér má sjá viðtal við Kára Kristján á Rúv.is en fréttin er tekin þaðan eins og forsíðumyndin.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is