Blaðamaður Tíguls hitti strákana í meistaraflokki karla í morgunsárið í Leifsstöð
Strákarnir eru á leið til Alicante í æfingarferð, oft þegar stór hópur fer saman þá getur eitthvað klikkað. Misvillandi upplýsingar urðu til þess að Óskar Elías Zoega var ekki með réttu pappíra meðferðis og þurfti því að græja það í morgun og rétt náði í lokaútkall. Við náðum tali af honum þegar hann kom hlaupandi inn í Leifsstöð, en hann auðvitað var pollrólegur að vanda.
Tígull mun að sjálfsögðu kíkja á æfingarleik hjá strákunum og lofa ykkur að fylgjast með.

