Í þættinum Matur og heimili á Hringbraut í kvöld leggur Sjöfn Þórðar leið sína til Vestmannaeyja á sjávarréttahátíðina MATEY sem haldin var í fyrsta skipti núna í september.
Veitingastaðirnir í Eyjum Gott, Slippurinn, Einsi kaldi og Næs fengu til sín erlenda meistarakokka sem hafa gert garðinn frægan og buðu upp á margrétta sérseðla sem slógu í gegn.
Allir staðirnir voru með gestakokka sem fengu að spreyta sig á íslenska sjávarfanginu, íslensku sprettunum frá Aldingróðri sem ræktaðar eru úti í Eyjum og bjórnum frá Brothers Brewery. Í næstu tveimur þáttum verður sýnt frá hátíðinni og veitingastaðirnir heimsóttir og fleiri aðilar sem tóku þátt. Fréttablaðið greindi frá, hér er hægt að lesa alla fréttina eins er myndbrot út þætti kvöldsins.

