Föstudagur 13. nóvember 2026
grv

Matsferill kemur í stað samræmdra könnunarprófa

Samræmd könnunarpróf verða ekki lögð fyrir á þessu skólaári og fram til 2024. Með lagabreytingu í sumar hefur skyldu um lagningu prófanna verið frestað á meðan unnið er áfram að þróun nýs samræmds námsmats, Matsferils, sem leysa mun samræmdu prófin af hólmi.

Matsferill er nýtt samræmt námsmat sem byggir á tillögum starfshóps frá árinu 2020 um markmið, hlutverk, framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa. Breiður hópur sérfræðinga og hagsmunaaðila vann tillögurnar. Aðalmarkmiðið er að færa skipulag námsmats nær nemendum og kennurum þannig að það þjóni nemendum sem verkfæri, aðgengilegu fyrir kennara og skóla til að nota eftir þörfum.

Samræmd próf voru tengd innritun í framhaldsskóla en svo hefur ekki verið um árabil. Á undanförnum árum hefur aukin áhersla verið lögð á að samræmt námsmat veiti skólum, nemendum og foreldrum upplýsingar um stöðu nemenda og skapi færi á að styðja við nám þeirra áður en grunnskólanámi lýkur.

Samhliða breytingunni verður ytra mat skóla eflt þar sem alþjóðlegar kannanir og ytra mat hvers skóla eru talin heppilegri tæki til að sinna eftirlitsskyldu mennta- og barnamálaráðuneytisins og gefa nákvæmari heildarmynd af stöðu menntakerfisins.

Með þessum breytingum á að fjölga verkfærum skólanna. Matsferill á að gefa nákvæmari mynd af stöðu og framvindu nemanda sem nýtist kennurum, nemendum, forsjáraðilum og skóla á þann veg að hægt verði að sjá hvað þurfi að bæta.

Gert er ráð fyrir að útfærsla verkefnisstjórnar á fyrirkomulaginu til framtíðar liggi fyrir vorið 2023 og að samráð um áframhaldandi þróun Matsferils haldi áfram með hagsmunaaðilum.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search