Sunnudagur 15. nóvember 2026

Matey og ferðaþjónustan – Myndir frá opnun hátíðarinnar

Matey sjávarréttahátíðin var sett formlega í Safnahúsi kl. 17:00 í dag. Þar voru smakk á matvælum frá Eyjafyrirtækjunum Grími kokki, VSV, Ísfélagi Vestmannaeyja og einnig kynnti The Brothers Brewery nýjan bjór; Okkar eiginn hvönn. Íris Róbersdóttir opnaði hátíðina, Frosti Gíslason er verkefnastjóri hátíðarinnar fór yfir Sjávarsamfélagið Vestmannaeyjar, Gísli Matthías Auðunsson fór yfir hugmyndafræðina, kynnti kokkana og matseðlana, Gíslína Dögg Bjarkardóttir kynnti sýninguna „Konur í sjávarútvegi“ sem verður opin í Einarsstofu yfir hátíðardagana kl. 10:00 – 17:00.

 

Berglind Sigmarsdóttir formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja flutti ávarp við opnun setningarinnar á Matey seafood festival:

Árið 2010 markaði tímamót í íslenskri ferðaþjónustu. Á árunum 2010-2019 skapaði ferðaþjónustan helming allra nýrra starfa sem urðu til utan höfuðborgarsvæðisins. Með ferðamönnum koma tekjur, bæði skatttekjur inn í sveitarsjóði og tekjur til fyrirtækja og launþega í viðkomandi sveitarfélagi, en árið 2019 skildu ferðamenn eftir 555 milljarða króna verðmæti í sveitarfélögum um allt land. Það er auðvelt að þylja upp tölfræðina um fjölda starfa og gjaldeyristekjur og þar eiga margar atvinnugreinar verðuga fulltrúa.

En þegar kemur að auknum lífsgæðum íbúa í sveitarfélögunum sjálfum þá er það skýr staðreynd að ein atvinnugrein umfram aðrar hefur umbylt aðgengi íbúa sveitarfélaganna á landsbyggðinni að veitingahúsum, afþreyingu, menningarstarfssemi og þjónustu síðasta rúma áratug. Sú atvinnugrein er ferðaþjónusta. Bætt þjónusta og fjölbreyttari lífsgæði íbúa i sveitafélaginu auka líkur á að nýjum íbúum fjölgi og dragi úr brottflutningi. Það er að gerast í Vestmannaeyjum í dag.

Við upphaf þessarar byltingar í fjölgun ferðamanna til Íslands voru Vestmannaeyjar í raun ekki þátttakandi. Þrátt fyrir mikin straum ferðamanna til landsins, stórbættar samgöngur til Eyja varð engin aukning ferðamanna hingað. Þetta er hægt að sjá í tölum frá Íslandsstofu sem sýndi að aðeins rétt rúmlega 2% ferðamanna sem komu til landsins fóru til Vestmannaeyja. Við vorum ekki inní myndinni. Það skapaði mikil vonbrigði fyrir þau fyrirtæki sem höfðu verið í uppbyggingu í þeirri trú að Landeyjahöfn myndi færa þeim aukin viðskipti.

Við vitum hvað ferðamenn eru að sækja til Íslands og við vitum öll hvað Vestmannaeyjar hafa uppá að bjóða sem ferðamannastaður. Vestmannaeyingar eiga gríðarlegt tækifæri í ferðaþjónustu. Nú er byltingin hafin í Vestmannaeyjum. Framsækni fyrirtækjaeigenda hér í ferðaþjónustu, áhugi bæjarstjóra og bæjarstjórnar á að hlusta á fólkið í framlínu ferðþjónustunnar skilaði árangri.  Það var hlustað á hvað þyrfti í raun að gera til að koma þessari perlu við Ísland á kortið. Til varð áhugavert samstarf sem vakið hefur athygli víða. Lögð hefur verið gríðarleg vinna í að markaðssetja Vestmannaeyjar, það hefur komið okkur á kortið og við erum að sjá árangur. Við erum að sjá það núna að við erum þátttakendur í blómlegri ferðaþjónustu á Íslandi.

Fjárfestar hafa séð hér tækifæri og við erum að sjá hús tekin í gegn, það er að fyllast í götin miðbænum, hann er að lifna við og miklar hreyfingar á fasteignamarkaði. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að Herjólfur sé vel rekinn, hann er samgönguæðin okkar. Og í okkar höndum. Það er líka mjög mikilvægt. Þær tekjur sem Herjólfur fær frá ferðamönnum eru því gríðarlega mikilvægar fyrir okkur sem búum hér. Samkvæmt tölum hjá Herjólfi erum við að slá hvert metið á eftir öðru í flutningi farþega, sem er frábært og staðfestir ennfremur hversu mikilvæg markaðssetningin er. Markaðssetning er fjárfesting!

Ferðaþjónustan hefur lengi vel verið lifandi hér í þrjá mánuði júní, júli og ágúst. Verkefni ferðaþjónustunnar er að stækka þetta tímabil, bæta við í báða enda. Því fyrirtækin eiga erfitt með að láta 3 góða mánuði vega á móti hinum 9 mánuðunum. Í gegnum tíðina hafa orðið til viðburðir í Eyjum sem hafa verið velheppnaðir og dregið að marga gesti eins og Þjóðhátíð, Goslokahátíð, íþróttamót og fleira, en til þess að stækka tímabilið þurfum við fleiri viðburði utan þessa hefðbundna 3 mánaða tímabils. Sem dæmi um velpheppnaðan og sístækkandi viðburð utan þess hefðbundna tímabils má nefna Puffin run þeirra Magga og Öddu sem er í maí. Það hafa innan ferðaþjónustunnar oft komið fram hugmyndir að fleiri, vor, haust eða vetrarviðburðum. Eitt af því sem oft hefur komið fram og lengi hefur verið rætt er matarhátíð.

Það hefur verið gaman að sjá hvað veitingastaðir í Eyjum hafa fengið góða umfjöllun og skapast mikil ánægja með þá fjölbreyttu flóru veitingastaða á þessari litlu eyju, sérstaklega líka fyrir þær sakir að allir þessir staðir eru fjölskyldureknir og af mikilli ástríðu. Vestmannaeyjar fengu svo tilnefninu sem besti mataráfangastaður norðurlanda hjá Emblu awards 2021. Það lá því beinast við að veitingastaðirnir tækju sig saman, hættu að tala um matarhátíð og myndu hrinda þessu í framkvæmd með aðstoð Ferðamálasamtakanna, sem allir staðirnir eru að sjálfsögðu meðlimir í.

Frosti Gíslason hjá Fab lab hafði verið farinn af stað með góðar hugmyndir varðandi Sjávarsamfélagið í samstarfi við Noora og þessar hugmyndir smullu allar saman í það sem við erum að sjá verða að veruleika í dag og heitir Matey seafood festival. Ég er ótrúlega stolt af þeirri vinnu sem hefur verið unnin í sjálfboðavinnu við að koma þessari hátíð af stað. Við sjáum þetta fyrir okkur sem gott start og vonum að við eigum eftir að sjá þessa hátíð dafna og vaxa á komandi árum.

Ég vil nota tækifærið og þakka bæjarstjóra, bæjarstjórn og starfsmönnum
Vestmannaeyjabæjar fyrir það traust sem Ferðamálasamtökunum hefur verið sýnd í
þessari byltingu sem hafin er í ferðaþjónustu í Vestmannaeyjum.

Berglind Sigmarsdóttir
Formaður Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja

 

Hægt er að panta borð og finna allar upplýsingar um hátíðina hér!

 

                        

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search