Leikfélag Vestmannaeyja sýnir þessa dagana hið sívinsæla leikrit um Dýrin í Hálsaskógi. Við tókum púlsinn á nokkrum ungum leikurum.
Nafn, aldur, fjölskylda: Aðalbjörg Andrea Brynjarsdóttir, 15 ára, mamma mín heitir Jóhanna og Pabbi minn heitir Brynjar.
Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum? Ég hef tekið þátt í 3 leikritum, ég var fyrst plóma í Ávaxtakörfunni, svo fiskur i Gosa, svo núna Marteinn í Dýrunum í hálsaskógi.
Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Plóman, skemmtilegur félagsskapur og góð leikgleði.
Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Ertu með eitthvað ráð með það? Ég á auðvelt með það, Ef það er eitthvað sem ég næ ekki alveg finnst mér gott að lesa yfir það áður en ég fer að sofa.
Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Dídí mannabarn
Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Bara æfa þig mikið fyrir prufur og virkilega reyndu á þig og þetta kemur allt með tíma.
Eitthvað að lokum? Maður verður ekki eins sterkur af neinu eins og grænmeti!
Nafn, aldur, fjölskylda: Guðbjörg Karlsdóttir, 11 ára, mamma heitir Halla Björk og pabbi Kalli Haralds. Ég á tvær yngri systur Kötlu Svövu og Söru Björk.
Hefur þú tekið þátt í mörgum leikritum? Ég hef tekið þá í tveimur leikritum. Gosa og núna í Dýrunum í Hálsaskógi. Í Gosa lék ég Gauju skólakrakka og núna leik ég Bangsa litla.
Hvað er skemmtilegasta hlutverkið sem þú hefur leikið og afhverju? Bangsi litli sem ég leik núna því það er stærra hlutverk en síðast.
Áttu auðvelt með að læra texta utan af? Já mér finnst frekar auðvelt að læra texta utan af.
Ertu með eitthvað ráð með það? Nei, engin sérstök ráð, bara lesa þetta vel og vandlega og sjá þetta fyrir sér á sviðinu.
Hvert er draumahlutverkið ef þú átt eitthvað slíkt? Já, Eva appelsína hefur lengi verið draumahlutverkið mitt á sviði.
Hvað viltu segja við þann sem langar að prófa að taka þátt? Bara að koma í prufur og prófa og sjá hvor manni finnist þetta ekki skemmtilegt.
Eitthvað að lokum? Mæli með fyrir alla að prófa að koma í leikhúsið, þetta er svo skemmtilegt og maður kynnist svo dásamlegu fólki.



