05.6.2020
Margrét Íris Einarsdóttir skrifaði undir tveggja ára samning við ÍBV. Margrét Íris hefur leikið 23 meistaraflokksleiki en Margrét hefur átt í erfiðum meiðslum undanfarin þrjú ár.
Margrét Íris hefur nú jafnað sig ágætlega af meiðslunum og stefnir ótrauð á að spila með liðinu í sumar, segir í frétt á vef ÍBV.