MÁNUDAGURINN á Þjóðhátíð er alltaf jafn magnaður
Á Herjólfsbryggju eru raðir af ungmennum á leið í Herjólf. Það var sól og blíða og því ekki mikið mál að kúra sér í röð og slaka eftir fjör helgarinnar.
Upp til hópa fyrirmyndar ungmenni hér á ferð og hlýddu kalli manna sem leiðbeindu þeim með farangur inn í flutningabíl og hvert skyldi haldið næst.
Tígull leið við í dalinn góða og þar var hópur fólks byrjað að taka til og pússa dalinn.












































