04.06.2020
Sjómannadagshelgin í söfnunum:
Vestmannaeyjabær á mikið safn listaverka þar sem málverk okkar helstu meistara skipa veglegan sess. Sýningahald og önnur starfsemi hefur legið niðri vegna Covid19 og samkomubanns en um Sjómannadagshelgina verður blásið til sóknar.
Í Einarsstofu í Safnahúsi verður sýning á málverkum úr eigu Vestmannaeyjabæjar er tengjast sjó og sjómennsku. Sýningin opnar á föstudeginum 5. júní.
Sjómannadagsblaðið 2020, sem borið er í hvert hús í Vestmannaeyjum, mun einnig liggja frammi meðan á sýningu stendur fyrir þá sem ekki fengu eintak eða þurfa aukaeintak.
Í Sagnheimum, byggðasafni og einnig í Sagnheimum, náttúrugripasafni við Heiðarveg verður í tilefni helgarinnar boðið upp á lifandi myndir og ljósmyndir af mannlífi og sjósókn fyrri tíðar. Ókeypis inn alla helgina. Heitt á könnunni, opið 10:00 – 17:00.
Forsíðumynd: Bjarni Sigurðsson
