Sunnudagur 15. nóvember 2026

Málþing, súpa og spjall

Náttúrustofa Suðurlands hefur frá árinu 1996 gegnt mikilvægu hlutverki í rannsóknum á náttúru Suðurlands, ekki síst í Vestmannaeyjum. Stofan er rekin af Vestmannaeyjabæ með stuðningi ríkisins og hefur aðsetur í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.

Meginhlutverk Náttúrustofunnar er að stunda vísindalegar rannsóknir, safna upplýsingum um náttúrufar og miðla þekkingu sem nýtist við náttúruvernd, nýtingu náttúruauðlinda og ákvarðanatöku. Rannsóknir á sjófuglum hafa verið veigamikill þáttur í starfseminni, sérstaklega rannsóknir á lunda, stofnstærð hans og þeim þáttum sem hafa áhrif á viðkomu og afkomu stofnsins. Það er sá þáttur í rekstrinum sem líklega er hvað mest áberandi gagnvart okkur hér í eyjum.

Fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar, þar sem sjófuglar eru órjúfanlegur hluti af náttúru, sögu og menningu, er mikilvægt að ákvarðanir um vernd og nýtingu byggist á traustum vísindalegum upplýsingum.

Málþing um stöðu og nýtingu sjófugla

Mánudaginn 12. október næstkomandi verður haldið málþing um stöðu og nýtingu sjófugla á Íslandi. Náttúrustofa Suðurlands kemur að undirbúningi málþingsins ásamt Náttúruverndarstofnun, Hafrannsóknastofnun, Náttúrufræðistofnun og fleiri aðilum.

Málþingið fer fram í húsnæði Hafrannsóknastofnunar kl. 9:00–16:30 og ætlar stjórn Náttúrustofu Suðurlands að streyma málþinginu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja.

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands hvetur alla sem láta sig málefni sjófugla varða til að fylgjast með málþinginu og taka þátt í þeirri mikilvægu umræðu sem þar fer fram. Náttúrustofan ætlar að bjóða upp á súpu í hádeginu og er því tilvalið að setjast aðeins niður og ræða saman.

Upplýsingar um málþingið og dagskrá þess má nálgast hér:
https://www.nattura.is/fraedsla/malthing-um-stodu-sjofugla-a-islandi-verdur-thann-12-oktober

Stjórn Náttúrustofu Suðurlands

 

Ljósmynd: Addi London

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search