Magnús Kjartan Eyjólfsson, söngvari og gítarleikari Stuðlabandsins frá Selfossi, mun stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í annað sinn í ár – en í þetta sinn fyrir framan fulla brekku.
Magnús stýrði brekkusöngnum í fyrra í streymi eftir að Þjóðhátíð var aflýst vegna kórónuveirunnar en honum lýst mjög vel á að taka að sér hlutverkið aftur í ár í breyttum aðstæðum.
„Mér leyst vel á þetta í fyrra þetta þetta kom upp áður en það var skellt í lás og mér lýst enn betur á þetta núna,“ segir Magnús í samtali við K100.is en hann segist hlakka ofboðslega mikið til að spila fyrir fulla brekku en ekki tóma eins og í fyrra.
Talsvert skemmtilegra að spila fyrir fólk en kindur
„Að fá að hafa fólk í brekkunni en ekki bara kindur. Það er talsvert skemmtilegra að spila fyrir fólk þó að kindurnar séu ágætar,“ segir Magnús glettnislega en hann segist stefna á að setja sitt mark á brekkusönginn þó hann segist ekki ætla að finna up hjólið hvað hann varðar.
„Ég tek nokkur af þessum gömlu skyldulögum sem allir elska á sama hvaða aldri þeir eru,“ segir Magnús en brekkusöngurinn fer fram á sunnudagskvöldinu um verslunarmannahelgina í brekkunni í Dalnum í Vestmannaeyjum.

