Magnús Dagur Jónatansson gengur til liðs við ÍBV og hefur undirritað tveggja ára samning.
Magnús Dagur er tvítugur og bráðefnilegur miðjumaður. Hann kemur til liðs við ÍBV frá uppeldisfélagi sínu, KA.
Magnús Dagur hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Nú síðast lék hann á EM í Rúmeníu í sumar, með U20 ára landsliðinu.
„Við erum afar glöð að fá hann til liðs við ÍBV og hlökkum til samstarfsins.
Velkominn Magnús Dagur!“, kemur fram í tilkynningu frá ÍBV.

