Hráefni:
¼ bolli brasilíuhnetur og 1 bolli vatn (sjá athugasemdir)
1 bolli vatn
½ banani
¼-1/2 tsk kanil
¼ tsk vanilladuft eða 2-3 vanilludropar
1 tsk hörfræ
1-2 msk kókospálmanektar síróp frá Biona
¼ -1/s tsk arctic thyme frá Íslensk hollusta
Um morguninn eða daginn áður:
Leggið brasilíuhnetur í bleyti.
Aðferð:
1. Skolið af brasilíuhnetum í sigti. Setjið hnetur og vatn í blandara og vinnið í brasilíumjólk.
2. Setjið rest af hráefnum í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Smakkið til og bætið við meira af sætu eða kryddum eftir smekk.
3. Drekkið fyrir ljúfan og djúpan nætursvefn.
Uppskriftin er fengin frá: www.heilsutorg.is/